Fögnum og grátum með náunga okkar

Tíminn flýgur. Í dag 11. mars eru fjögur ár liðin síðan jarðskjálftar og flóðbylgjur skóku Japan árið 2011. Um 16.000 manns létu lífið nær samstundis og 2.600 manns er saknað. Hamfarirnar höfðu og hafa haft gríðarleg áhrif á japanskt samfélag bæði efnahagslega og andlega.

Ég hef heyrt að lífið á hamfarasvæðunum hafi lagast lítið eitt en enn eigi eftir að takast á við alvörumál eins og eftir kjarnorkuleka en ekki síður sorgina og áfallið í lífi þess fólks sem missti fjölskyldu sína og æskuvini, heimili og jafnvel heimabæ og mun aldrei geta gleymt því eða þurrkað það út úr brjósti sínu þar sem söknuðurinn er endalaus.

Ég veit að þetta er ekki „eini sorglegi atburðurinn“ í heiminum okkar. Það deyja fleiri en sex milljónir barna á hverju ári, jafnvel talin aðeins yngri en fimm ára, samkvæmt skýrslu UNICEF. Það gæti því virkað undarlegt og sjálfhverft að minnast fórnarlamba ákveðins atburðar á heimalandi sínu á ákveðnum degi, en ekki minnast á sama hátt allra í heiminum sem farið hafa í gegnum erfiðleika og upplifað áfall. Það er ef til vill ákveðin takmörkun manneskju.

„Fagnið með fagnendum, grátið með grátendum“ (Rom. 12:15) eru uppáhaldsorð mín í Biblíunni. Það þýðir að við skulum lifa með náungum okkar alla tíð, hvort sem tíminn er góður eða slæmur.

Ef við verðum ánægð með því að takmarka „náunga okkar“ við fjölskyldur okkar, vini eða samlanda,  þá mun það vera ekki eftirsóknarvert. Aftur á móti ef við hvorki fögnum né grátum, ekki einu sinni með fólkinu í kringum okkur eða samlöndum, þá mun slíkt aðeins þýða að við eigum enga náunga. Það er ekki gott. Við þurfum að stíga fyrsta skrefið, þaðan sem við erum stödd núna.

Ég held að Japanar séu þjóð, sem fyrir ykkur sem búið á Íslandi sé langt í burtu. Engu að síður sýnduð þið mikla samúð, samstöðu og aðstoð eftir hamfarirnar. Fjölmörg samtök og einstaklingar lögðu sitt á vogarskálarnar eins og Rauði kross Íslands, Hjálparstarf kirkjunnar, Samtökin Vinir Japans, ÆSKÞ og fleiri sem ég gæti nefnt. Það voru sendar prjónaflíkur frá einstaklingum alls staðar af á landinu. Þá voru bænastundir í mörgum söfnuðum og hjá einstaklingum.

Sem einn af Japönum sem búa á Íslandi vil ég þakka ykkur innilega fyrir. Guð gefi fórnarlömbum hamfaranna í Japan frið, hugsi til allra sem eru í neyð í heiminum, og blessi alla sem reyna að fagna og gráta með náunga sínum.

(Prestur innflytjenda, 11.mars 2015 Vísir.is)

css.php